Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Þór/KA verður áfram meðal þeirra bestu í fótboltanum eftir öruggan 0-2 sigur á Víkingi Reykjavík í lokaumferð Bestu deildarinnar í fótbolta. Staðan í deildinni fyrir lokaumferðina var á þá leið að um var að ræða hreinan úrslitaleik um hvort liðið myndi falla úr deildinni.
Leikurinn var spennuþrungin frá fyrstu mínútu en mörk frá Maríu Dögg Jóhannesdóttur og Erin Flurey á síðasta stundarfjórðungi leiksins tryggðu okkar konum sigurinn.
Víkingur er því fallið ásamt Val sem lagði Fram að velli á sama tíma.
Þór/KA á toppnum yfir flestar mínútur uppalinna leikmanna
Þór/KA var það lið sem var með hæst hlutfall leikmínútna uppalinna leikmanna í deildinni, þ.e. leikmenn sem fóru upp í gegnum barna- og unglingastarf Þórs og KA. Að auki voru fimm leikmenn úr yngri flokka starfinu á Akureyri sem léku með öðrum liðum í Bestu deildinni á tímabilinu.
Þá eru ótaldar þær þrjár sem leika sem atvinnumenn erlendis, í efstu deildum Þýskalands og Svíþjóðar.
Það er því óhætt að fullyrða að félagið sé í fararbroddi hér á landi þegar kemur að því að koma leikmönnum áfram á hæsta stig; í efstu deild hér á landi eða enn lengra.


Þór/KA 2026
Aftasta röð frá vinstri: Aron Birkir Stefánsson markvarðaþjálfari, Sveinn Leó Bogason aðstoðarþjálfari, Angela Mary Helgadóttir, Birgitta Rún Finnbogadóttir, Karen Hulda Hrafnsdóttir, Aníta Ingvarsdóttir , Hildur Anna Birgisdóttir, Bríet Jóhannsdóttir, Eva S. Dolina-Sokolowska, Sigurbjörn Bjarnason styrktarþjálfari.
Miðröð frá vinstri: Haraldur Ingólfsson liðsstjóri, Iðunn Elfa Bolladóttir sjúkraþjálfari, Emelía Ósk Krüger, Kolfinna Eik Elínardóttir, Halla Bríet Kristjánsdóttir, Elísa Bríet Björnsdóttir, Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir, Erin Flurey, Amalía Árnadóttir, Aðalsteinn Jóhann Friðriksson þjálfari, Jóhann Hreiðarsson aðstoðarþjálfari.
Fremsta röð frá vinstri: Karen María Sigurgeirsdóttir, María Dögg Jóhannsdóttir, Agnes Birta Stefánsdóttir, Harpa Jóhannsdóttir, Hulda Björg Hannesdóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir, Allie Augur, Hulda Ósk Jónsdóttir, Margrét Árnadóttir, Libby Moore.
Á myndina vantar eftirtaldar:
Bríet Kolbrún Hinriksdóttir, Ísey Ragnarsdóttir (á láni hjá Völsungi), Bríet Fjóla Bjarnadóttir (fór til Þróttar í sumarglugganum), Lauren Lapomarda (kom til félagsins eftir myndatöku).
Mynd: Skapti Hallgrímsson.