Þór/KA vann silfur í Lengjubikarnum

Þór/KA og Stjarnan gerðu 2-2 jafntefli í úrslitaleik Lengjubikarsins í gær. Stjarnan sigraði, 5-4, eftir vítaspyrnukeppni.

Þór/KA komst yfir á 15. mínút með marki frá Söndru Maríu Jessen, en Snædís María Jörundsdóttir jafnaði fyrir Stjörnuna á 34. mínútu. Hulda Ósk Jónsdóttir kom Þór/KA í 2-1 með glæsimarki á 63. mínútu, en Ólína Ágústa Valdimarsdóttir jafnaði aftur fyrir Stjörnuna á 77. mínútu. Meira var ekki skorað í venjulegum leiktíma, lokatölurnar 2-2.

Í Lengjubikarnum er ekki framlengt heldur farið beint í vítaspyrnukeppni. Þar hafði Stjarnan betur, 5-4.

Nánar er sagt frá leiknum og myndband af mörkum á thorka.is.