Þór/KA/Völsungur Íslandsmeistari í 2.flokki

Stelpurnar í Þór/KA/Völsungi tryggðu sér á dögunum Íslandsmeistaratitil í 2.flokki í fótbolta þegar stelpurnar unnu öruggan 6-1 sigur á HK á heimavelli sínum í Boganum.

Þór/KA/Völsungur hefur lokið níu leikjum og unnið þá alla, er með 27 stig á toppnum. Víkingur er í 2. sæti með 19 stig, á aðeins tvo leiki eftir og getur því ekki náð okkar liði að stigum. Okkar stelpur hafa haft talsverða yfirburði á önnur lið í mótinu og eru með markatöluna 51-11.

Nánar um leikinn hér.

Þessar spiluðu eða voru viðstaddar þegar Íslandsmeistaratitillinn var tryggður, en alls hafa 34 leikmenn komið við sögu í leikjum liðsins í mótinu.

Aftari röð frá vinstri: Pétur Heiðar Kristjánsson þjálfari, Anna Guðný Sveinsdóttir, Harpa Jóhannsdóttir, Lilja Gull Ólafsdóttir, Emelía Ósk Krüger, Bríet Jóhannsdóttir, Rut Marín Róbertsdóttir, Amalía Árnadóttir, Una Móeiður Hlynsdóttir, Iðunn Rán Gunnarsdóttir fyrirliði og Birkir Hermann Björgvinsson þjálfari.

Fremri röð frá vinstri: Steingerður Snorradóttir, Arna Rut Orradóttir, Júlía Margrét Sveinsdóttir, Emilía Björk Óladóttir, Angela Mary Helgadóttir, Kolfinna Eik Elínardóttir, Hildur Anna Birgisdóttir, Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir og Krista Dís Kristinsdóttir.