Þórsarar bjóða í rjómavöfflur, rjúkandi súkkulaði og sögur frá Palla Jóh

Þórsarar nær og fjær!

Eins og undanfarin ár í aðdraganda jóla býður félagið gestum og gangandi upp á rjúkandi rjómavöfflur og heitt súkkulaði á morgun, föstudaginn 15. desember kl. 9:00-11:30. Nói Björnsson, formaður Þórs, stendur við vöfflujárnið og bakar eins og enginn sé morgundagurinn.

Rúsínan í pylsuendanum, ef þannig má að orði komast um vöfflukaffi, verður svo í boði Palla Jóh. Hann hefur mikið grúskað í sögu Þórs og hefur tekið saman nokkrar skemmtilegar sögur úr fortíðinni sem hann ætlar að segja öðru hverju á meðan á vöffluhátíðinni stendur. 

Njótum aðventunnar í góðu félagsskap.

Verið öll hjartanlega velkomin í Hamar.

Áfram Þór.