Þórsarar Íslandsmeistarar í 5.flokki B-liða

Titlinum var fagnað vel í leikslok. Til hamingju strákar!
Titlinum var fagnað vel í leikslok. Til hamingju strákar!

Þórsarar unnu nú rétt í þessu magnaðan 4-2 sigur á KR í úrslitaleik B-liða 5.flokks stráka. Okkar menn létu ekki erfiða byrjun í leiknum á sig fá og þrátt fyrir að vera 0-2 undir þegar leikurinn var rúmlega hálfnaður vannst frábær 4-2 sigur. Við óskum strákunum og þjálfurum þeirra, þeim Steinari Loga Rúnarssyni, Brynjólfi Sveinssyni, Nikola Stojanovic og Birki Hermanni Björgvinssyni innilega til hamingju!

Yngri flokka starf okkar Þórsara er einstaklega gott eins og við öll vitum og það hefur sannað sig í frambærilegum liðum yngri flokka okkar, fjölda yngri landsliðsmanna og feyki efnilegra meistaraflokka þar sem ungt fólk fær tækifæri til að sanna sig.