Þórsvöllur verður VÍS-völlurinn

Frá undirritun samningsins. Frá vinstri: Aron Birkir Stefánsson, leikmaður Þórs, Ingvi Hrafn Ingvaso…
Frá undirritun samningsins. Frá vinstri: Aron Birkir Stefánsson, leikmaður Þórs, Ingvi Hrafn Ingvason, þjónustu stjóri VÍS á Akureyri, Sveinn Elías Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Þórs, og Hulda Björg Hannesdóttir, leikmaður Þórs/KA.

Undirritaður hefur verið samningur til þriggja ára milli VÍS og íþróttafélagsins Þórs um að nafni Þórsvallar verði breytt og muni verða notast við nafnið VÍS-völlurinn að minnsta kosti næstu þrjú árin.

Í tilefni af samningum þessa efnis býður VÍS á leik Þórs og Aftureldingar í Lengjudeildinni sunnudaginn 16. júlí. 

Ingvi Hrafn Ingvason, þjónustustjóri VÍS á Akureyri:

„Það liggur beinast við að Þórsvöllurinn verði VÍS-völlurinn, enda eigum við fallega rauða litinn sameiginlegan. Við viljum leggja okkar af mörkum til samfélagsins og það er okkur ljúft og skylt að styrkja íþróttastarfið með þessum hætti. Við hlökkum til samstarfsins.“

Sveinn Elías Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Þórs:

„Við erum þakklát VÍS fyrir þetta rausnarlega framlag og samninginn til næstu þriggja ára. Þetta skiptir íþróttastarfið miklu máli. Við erum því virkilega spennt fyrir komandi tímum.“


Þórsvöllur var endurnýjaður og tekinn í notkun á Landsmóti UMFÍ 9. júlí 2009. Fyrsti knattspyrnuleikurinn á vellinum eftir endurnýjun fór fram miðvikudaginn 22. júlí 2009. Næstu þrjú árin fara knattspyrnuleikir fram á VÍS-vellinum. 


Ingvi Hrafn Ingvason, þjónustustjóri VÍS á Akureyri, og Sveinn Elías Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Þórs, handsala samninginn á Þórsvellinum sem brátt mun ganga undir nýju nafni.