ÞórTV sýnir úrslitaleiki yngri flokka

Um helgina fara tveir úrslitaleikir fram á Þórsvelli þar sem annars vegar mætast Þór og KR í 5.flokki karla B og keppa um Íslandsmeistaratitil og hins vegar mætast Þór/KA og Breiðablik í 3.flokki kvenna og keppa um bikarmeistaratitil.

Við hvetjum alla til að mæta á völlinn en fyrir þá sem ekki eiga heimangengt á Þórsvöll vekjum við athygli á að ÞórTV verður með beina útsendingu frá báðum leikjunum.

Með því að smella hér kemstu á vef ÞórTV og getur opnað útsendinguna.