Þriðji leikur Þórs og Stjörnunnar í kvöld

Kvennalið Þórs í körfubolta mætir liði Stjörnunnar í úrslitaeinvígi liðanna í 1. deild kvenna í Garðabænum í kvöld kl. 19:15.

Liðin hafa nú þegar mæst tvisvar sinnum og vann heimaliðið í báðum leikjunum. Stjarnan vann fyrsta leikinn með 14 stiga mun í Garðabænum fyrir viku, en Þórsarar jöfnuðu einvígið með fimm stiga sigri í frábærum leik síðastliðinn laugardag. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki vinnur einvígið - en eins og oft hefur komið fram áður hafa bæði liðin tryggt sér sæti í Subway-deildinni á næsta tímabili.

Óhætt er að mæla með góðri skemmtun þegar Þórsstelpurnar spila, þær hafa sýnt það ítrekað í allan vetur. Við hvetjum því okkar fólk syðra til að mæta í Garðabæinn til að styðja stelpurnar til sigurs. Leikurinn hefst kl. 19:15.

Fjórði leikur liðanna verður í Íþróttahöllinni á Akureyri.

Hér er streymi frá leiknum í kvöld á YouTube-rás Stjörnunnar: