Þrjár frá Þór/KA á mót í Portúgal

Leikmannahópur U16 landsliðsins. Myndin er frá KSÍ.
Leikmannahópur U16 landsliðsins. Myndin er frá KSÍ.

Angela Mary Helgadóttir, Krista Dís Kristinsdóttir og Sonja Björg Sigurðardóttir hafa verið valdar í U16 landsliðið sem tekur þátt í móti í Portúgal núna í maímánuði.

Magnús Helgason er landsliðsþjálfari U16 og hefur hann valið 20 leikmenn sem taka þátt í verkefninu, þar af þessar þrjár úr Þór/KA. Um ræðir UEFA Developement Tournament þar sem Ísland mætir Portúgal, Spáni og Austurríki. Leikdagarnir eru 12., 14. og 17. maí.

Upplýsingar úr frétt á vef KSÍ.


Frá vinstri: Angela Mary Helgadóttir, Sonja Björg Sigurðardóttir og Krista Dís Kristinsdóttir.