Þrjú lið jöfn á toppi Ljósleiðaradeildarinnar

Þórsarar eru jafnir tveimur öðrum liðum að stigum á toppi Ljósleiðaradeildarinnar þegar 15 umferðum er lokið. Þrjár umferðir eru eftir.

Liðin fyrir ofan Þór, Atlantic og Dusty, mættust í umferðinni sem spiluð var á laugardagskvöldið. Dusty sigraði og fór upp að hlið Atlantic með 22 stig. Þór vann einnig sína viðureign og er með 22 stig eins og Atlantic og Dusty.

Sextánda umferð deildarinnar verður spiluð 31. janúar og 2. febrúar. Þórsarar mæta Ármenningum fimmtudaginn 2. janúar kl. 19:30. Ármenningar hafa verið að sækja í sig verðrið að undanförnu og eru í 4. sæti. Viðureignirnar eru í beinni útsendingu á Stöð 2 esport og á Twitch-síðu Rafíþróttasamtaka Íslands.

Þrjár umferðir eru eftir af deildinni.

Fjallað var um síðustu umferð og stöðuna í Ljósleiðaradeildinni á Vísi í gær - sjá hér.

Ljósleiðaradeildin á Facebook.
Rafíþróttasamtök Íslands á Facebook.