Tvær á HM, þrjár á EM

Landslið Íslands U19. Ísfold Marý Sigtryggsdóttir er lengst til vinstri í öftustu röð, Kimberley Dór…
Landslið Íslands U19. Ísfold Marý Sigtryggsdóttir er lengst til vinstri í öftustu röð, Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir við hlið hennar og Jakobína Hjörvarsdóttir lengst til hægri í miðröðinni. Mynd: KSÍ.

Þessa dagana eru fimm leikmenn frá Þór/KA með landsliðum sínum erlendis, tvær með landsliði Filippseyja á HM og þrjár með U19 landsliði Íslands á lokamóti EM U19.

U19 landslið Íslands hefur þegar lokið einum leik á lokamóti EM U19 þar sem átta lið spila í tveimur riðlum og tvö lið úr hvorum riðli fara áfram í undanúrslit. Íslensku stelpurnar máttu játa sig sigraðar gegn Spánverjum, 0-3, í fyrsta leik sínum í mótinu. Næsti leikur er á morgun kl. 15:30 þegar Ísland mætir Tékklandi. Lokaleikur liðsins í riðlinum er svo á mánudag kl. 18:30 gegn Frakklandi. 

Í U19 hópnum eru þrjár frá Þór/KA eins og áður sagði, þær Ísfold Marý Sigtryggsdóttir, Jakobína Hjörvarsdóttir og Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir. 

Leikur Íslands og Tékklands verður sýndur beint á Rúv - sjá hér.

Leikur Íslands og Frakklands á mánudag verður sýndur beint á Rúv 2 - sjá hér

Tvær að brjóta blað á HM

Tvær frá Þór/KA héldu utan fyrr í mánuðinum og eru nú staddar í Nýja-Sjálandi, klárar í fyrsta leik í A-riðli Heimsmeistaramótsins kl. 05:00 í fyrramálið. Dominique Randle og Tahnai Annis eru báðar í leikmannahópi Filippseyja sem mætir Sviss í fyrramálið í fyrsta leik Filippseyinga í lokamóti HM. Tahnai er fyrirliði landsliðs Filippseyja.

Allt um HM á HM-vef Rúv.


Tahnai Annis og Dominique Randle hefja leik á HM í fyrramálið kl. 05:00.