Tvær frá Þór/KA í byrjunarliði U19

Jakobína Hjörvarsdóttir og Ísfold Marý Sigtryggsdóttir verða í eldlínunni með U19 landsliðinu næstu …
Jakobína Hjörvarsdóttir og Ísfold Marý Sigtryggsdóttir verða í eldlínunni með U19 landsliðinu næstu vikuna.

Ísfold Marý Sigtryggsdóttir og Jakobína Hjörvarsdóttir hófu leik með U19 landsliðinu í undanriðli EM núna í morgun kl. 9:00. Leiknum er streymt beint á YouTube.

Ísland mætir liði Liechtenstein í fyrsta leik í undanriðlinum og hefst leikurinn núna í morgunsárið að íslenskum tíma - kl. 9:00. Leikið er í Litháen. Mögulegt er að fylgjast með leiknum í beinni útsendingu á YouTube - smellið hér til að horfa.

Ísland er í riðli með Liechtenstein, Færeyjum og Litháen, en riðillinn er spilaður í Vilnius, höfuðborg Litháens. Stelpurnar mæta Liechtenstein í dag, Færeyjum á föstudag og Litháen á mánudag. Sigurlið riðilsins fer upp í A-flokk og í milliriðil sem spilaður verður í mars. Þjálfari U19 landsliðsins er Margrét Magnúsdóttir.

Hér má sjá leikjadagskrána á vef KSÍ.

Hópurinn í dag - mynd af Facebook-síðu KSÍ.