Tvíhöfði í höllinni

Tvíhöfði í höllinni

Föstudagurinn 10. febrúar: Karlalið Þórs tekur á móti ÍA klukkan 18 en kvennaliðið tekur á móti Breiðabliki b klukkan 20:15.

Það verður fjör í íþróttahöllinni á morgun, föstudag þegar karla lið Þórs í körfubolta tekur á móti ÍA í leik sem hefst klukkan 18:00 og fjörið heldur áfram klukkan 20:15 þegar stelpurnar mæta á parketið og spila við b lið Breiðabliks.

Athygli er vakin á því að aðeins eitt verð er á báða leikina þ.e. 2.000 krónur en frítt fyrir 16 ára og yngri.

Milli leikja verður kynnt upp í grillinu og seldir verpa grillaðir hamborgarar og drykkir á 1.500 kr.

Fyrir þá sem ekki komast á leikina þá verða þeir báðir í beinu streymi á Þór TV https://www.livey.events/thortv

Hvetjum fólk til þess að fjölmenna á leikina og styðja liðin okkar til sigurs.

Áfram Þór alltaf, alls staðar