U16 hafnaði í 5.sæti

Angela í treyju númer 14
Angela í treyju númer 14

U16 landslið kvenna hafnaði í 5. sæti á Opna Norðurlandamótinu í ár eftir 3-2 sigur gegn Finnlandi í leik um sætið en mótið hefur farið fram í Noregi undanfarna daga.

Angela Mary lék allan leikinn í dag en Krista Dís kom inn á undir lok leiks. 

Angela og Krista eru báðar fæddar árið 2006 og eru því á eldra ári 3.flokks sem hefur átt góðu gengi að fagna á Íslandsmótinu í sumar og ekki tapað leik í allt sumar. Þær eru í æfingahópi meistaraflokks Þórs/KA og hefur Angela leikið fjóra leiki í Bestu deildinni í sumar.