Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Íslenska U19 ára karla landslið karla vann góðan 3-2 sigur gegn Georgíu í undankeppni EM 2027 og tryggði liðið þar með sæti í A-deild undankeppni EM.
Ísland hafði áður gert 1-1 jafntefli við Svartfjallaland en alls voru fimm Þórsarar í hópnum hjá U19 og voru þeir allir inn á vellinum á lokasprettinum gegn Georgíu sem var æsispennandi en Sigurður Jökull Ingvason stóð í marki Íslands; Egill Orri Arnarsson í vinstri bakverði; Ásbjörn Líndal Arnarsson í hjarta varnarinnar, Sverrir Páll Ingason hægri bakvörður og Einar Freyr Halldórsson á miðjunni en sá síðastnefndi var fyrirliði íslenska liðsins í báðum leikjunum.
Leikurinn var jafn 1-1 þegar komið var fram í uppbótartíma en leiknum lauk sem fyrr segir með 3-2 sigri Íslands. Hreint ótrúlegar lokamínútur þar sem Einar Freyr lagði upp sigurmarkið sem kom með síðustu spyrnu leiksins.
Dregið verður í A-deildina 15. júní.