Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
U19 ára landslið Íslands í fótbolta er úr leik í undankeppni EM 2027 eftir 1-1 jafntefli gegn Wales.
Þar sem liðin voru jöfn að öllu leyti í 3.-4. sæti riðilsins þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni til að útkljá hvort liðið myndi halda sæti sínu í A deild undankeppninnar fyrir síðustu umferð hennar.
Wales vann vítaspyrnukeppnina og því kemst Ísland ekki áfram í næstu umferð undankeppninnar.
Framlag Þórsaranna
Um var að ræða þriggja leikja riðil þar sem íslenska liðið fór vel af stað með 2-2 jafntefli gegn firnasterku liði Spánverja.
Í þeim leik stóð Sigurður Jökull Ingvason á milli stanganna; Ásbjörn Líndal Arnarsson og Egill Orri Arnarsson voru hlið við hlið í vinstri hluta varnarlínunnar; Einar Freyr Halldórsson var fyrirliði íslenska liðsins og Þorri Ingólfsson var einnig í byrjunarliðinu. Eftir að hafa lent 2-0 undir kom íslenska liðið til baka og náði að jafna leikinn en það gerði Ásbjörn með glæsilegu hægri fótar skoti seint í leiknum.
Sverrir Páll Ingason kom ekkert við sögu í leikjunum eftir að hafa glímt við veikindi í upphafi verkefnisins.
Í öðrum leiknum voru andstæðingarnir Finnar. Einar Freyr var í leikbanni í þeim leik en Ásbjörn, Egill og Þorri byrjuðu leikinn sem tapaðist 1-0.
Í síðasta leiknum gegn Wales var Einar aftur mættur í liðið með fyrirliðabandið og Egill áfram í byrjunarliðinu en leiknum lauk sem fyrr segir með tapi í vítaspyrnukeppni.