Úrslitaleikir helgarinnar hjá yngri flokkum

Hluti af liði 3.flokks kvenna sem leikur til úrslita um Íslandsmeistaratitil á sunnudag.
Hluti af liði 3.flokks kvenna sem leikur til úrslita um Íslandsmeistaratitil á sunnudag.

3.flokkur kvenna B leikur til úrslita um Íslandsmeistaratitil og fer leikurinn fram á KA-velli klukkan 17:00 á sunnudag. Stelpurnar gerða góða ferð í Ólafsvík í vikunni þar sem þær lögðu sameinað lið Snæfellsnes í undanúrslitum 1-4. 

Andstæðingar stelpnanna verður sterkt lið FH sem hafnaði í efsta sæti deildarinnar á meðan okkar stelpur höfnuðu í 2.sæti.

4.flokkur karla leikur til úrslita um Bikarmeistaratitil og fer leikurinn fram á Kópavogsvelli klukkan 13:00 á sunnudag þar sem andstæðingurinn er Breiðablik. Strákarnir tryggðu sér á dögunum Íslandsmeistaratitil og geta á sunnudag bætt einum bikar til viðbótar við uppskeru sumarsins.

Auk þessara úrslitaleikja verða önnur lið í 2. og 3.flokki einnig í eldlínunni en yfirlit yfir tímasetningar á öllum leikjum helgarinnar má sjá hér fyrir neðan.

Við hvetjum að sjálfsögðu alla til að fjölmenna á völlinn og hvetja okkar lið til sigurs í verkefnum helgarinnar.

Leikdagur Tími Mót Völlur Heimalið Gestir
Fös. 16.09.2022 17:00 3. flokkur karla A - Lota 3 Miðgarður Stjarnan Þór
Sun. 18.09.2022 13:00 4. flokkur karla bikar Kópavogsvöllur Breiðablik Þór
Sun. 18.09.2022 15:00 2. flokkur karla A Boginn Þór/Samherjar ÍA/Kári/Skallag
Sun. 18.09.2022 15:00 3. flokkur kvenna A - Lota 3 KA-völlur Þór/KA Víkingur R.
Sun. 18.09.2022 17:00 3. flokkur kvenna B-lið Ú KA-völlur Þór/KA FH/ÍH
Mán. 19.09.2022 20:00 2. flokkur kvenna B U20 KA-völlur Þór/KA/Völsungur Tindastóll/Hvöt/Korm