Úrslitaleikur um Íslandsmeistaratitil í Kaplakrika

Hluti af 4.flokks liðinu
Hluti af 4.flokks liðinu

4.flokkur karla A leikur til úrslita um Íslandsmeistaratitil í dag þegar strákarnir mæta FH-ingum á Kaplakrikavelli.

Strákarnir í 4.flokki hafa átt góðu gengi að fagna í sumar og eru taplausir í fimmtán leikjum í deild og bikar í sumar. Lið FH hafnaði í 2.sæti A-deildar á íslandsmótinu og hafa háð harða baráttu við okkar drengi í sumar.

Við hvetjum Þórsara á höfuðborgarsvæðinu til að mæta í Kaplakrika í dag og styðja strákana til sigurs.

Leikurinn hefst klukkan 17:00 og verður leikinn á aðalvelli FH-inga.

Áfram Þór!