Úrslitarimma Þórs og Stjörnunnar heldur áfram

Úrslitarimma Þórs og Stjörnunnar heldur áfram

Þór tekur á móti Stjörnunni í öðrum leik í úrslita 1. deildar kvenna í körfubolta í leik sem fram fer í íþróttahöllinni á morgun, laugardag 8. apríl klukkan 16.

Stelpurnar okkar töpuðu fyrsta leiknum sem fram fór í Garðabæ en nú verður tekist á í íþróttahöllinni og því segjum við „ræs allir klárir í bátana“. Stelpurnar og Daníel þjálfari eru klár í slaginn og munu ekki láta sitt eftir liggja í þessari mögnuðu baráttu.

Stemningin í leikjum Þórs í íþróttahöllinni í vetur hefur verið hreint út sagt mögnuð og þeir fjölmörgu áhorfendur sem mættu engum líkir.

Úrslitarimma liðanna er og verður sannkölluð veisla sem engin áhugamaður um körfubolta ætti að láta fram hjá sér fara.

Leikurinn hefst klukkan 16:00 og miðaverð 2.000 krónur og frítt fyrir 16 ára og yngri.

Fyrir þá sem ekki komast á leikinn þá verður hann í beinu streymi á Þór TV https://www.livey.events/thortv 

Við hvetjum fólk til þess að kynna sér þá kosti sem fylgir því að vera meðlimur í Sjötta manninum stuðningsmannaklúbb deildarinnar. Um klúbbinn og skráningu má finna á eftirfarandi slóð https://www.thorsport.is/korfubolti/arskort

Hvetjum við stuðningsmenn til að fjölmenna á leikinn og styðja Þór til sigurs.

Körfubolti er skemmtileg íþrótt.

Áfram Þór alltaf, alls staðar

Smellið á myndina til að komast inn á ÞórTV