Vekja áhuga ungmenna á þjálfun

Snorri Örn Arnaldsson, mótastjóri KKÍ, messar yfir þátttakendum á byrjendanámskeiði A1.
Snorri Örn Arnaldsson, mótastjóri KKÍ, messar yfir þátttakendum á byrjendanámskeiði A1.

Átján þátttakendur á byrjendanámskeiði í körfuboltaþjálfun.

Körfuknattleiksdeild Þórs og KKÍ standa fyrir þjálfaranámskeiði fyrir byrjendur, 1A, sem er hluti af því að vekja almennan áhuga ungmenna innan félagsins á þjálfun í körfubolta. Snorri Örn Arnaldsson, mótastjóri KKÍ, var mættur í Hamar í dag og hélt fyrirlestur fyrir þátttakendur á námskeiðinu. Kennslan fer síðan einnig fram með verklegum hætti í íþróttahúsi Síðuskóla. Yngstu þátttakendur á námskeiðinu eru fæddir 2009.