Verðlaunahafar á Pollamóti Samskipa

Vinir Linta og SÚN FC voru vinir áfram að loknum úrslitaleik Polladeildar þar sem Vinir Linta höfðu …
Vinir Linta og SÚN FC voru vinir áfram að loknum úrslitaleik Polladeildar þar sem Vinir Linta höfðu 3-2 sigur. Mynd: HI.

Knattspyrnukeppni 35. Pollamótsins – eða Pollamóts Samskipa eins og það heitir þar sem Samskip hafa verið okkar stærsti samstarfsaðili við mótshaldið undanfarin ár – fór að mestu vel fram og lauk með úrslitaleikjum í flestum deildum síðdegis á laugardag. Því miður fylgja ýmis óhöpp svona mótum og leikmenn meiðast, og sendum við þeim þátttakendum sem lentu í slíku bestu batakveðjur.

Metþátttaka – sprenging hjá konunum

Alls skráðu 67 lið sig til leiks á mótinu, sem er metþátttaka, en að okkar bestu vitun höfðu þátttökulið orðið flest 62 áður, árin 2015 og 2021. Fjöldi karlaliða var svipaður og undanfarin ár, en það voru konurnar sem áttu heiðurinn að þessari fjölgun. Þar höfðu liðin flest verið 18 árið 2019, en nú voru 25 lið með nokkuð á fjórða hundrað leikmönnum skráð í kvennadeildirnar, sem er met. Þátttakendur voru um 830 þegar upp var staðið, en vegna þreytu, meiðsla eða jafnvel metnaðar hjá sumum liðum bættu allmörg lið við sig leikmönnum á síðari mótsdeginum.

Keppt var í sjö aldursskiptum deildum, fjórum hjá körlunum og þremur hjá konunum.

Verðlaunahafar í deildum – konur
Ljónynjudeild – 35+ Dömudeild – 28+ Skvísudeild – 20+
1. AFK 1. FC Lola 1. FC Guns
2. KR old girls 2. Dætur Þorpsins 2. 225
3. Drottningar 3. FC Rækjan 3. Trunturnar
 
 
 
 
Verðlaunahafar í deildum – karlar
Öðlingadeild – 50+ Lávarðadeild – 42+ Jarladeild – 35+ Polladeild – 28+
1. Grótta 1. Ginola 1. KFF Masters 1. Vinir Linta
2. Umf. Óþokki 2. Umf. Óþokki 2. Allt annar flokkur 2. SÚN FC
3. KR 3. Lion KK 3. FC Samba Legends 3. Fasteignafélagið

Í Öðlingadeild var ekki leikin úrslitakeppni heldur gilti einfaldlega staðan eftir að liðin höfðu spilað einfalda umferð í deildinni. Þrjú lið urðu jöfn að stigum og því var það markamunur sem réði úrslitum.

Nánar er fjallað um verðlaun og fleira á nýafstöðnu Pollamóti Samskipa á vef mótsins, pollamot.is, en hér að neðan má sjá úrslit allra leikja, lokastöður í riðlum/deildum og úrslitakeppnir.