Vetraræfingar fótboltans að hefjast

Stærstur hluti vetrarstarfsins fer fram í Boganum en einnig er notast við Baldvinsstofu og KA-völl.
Stærstur hluti vetrarstarfsins fer fram í Boganum en einnig er notast við Baldvinsstofu og KA-völl.

Mánudaginn 3.október fer yngri flokka starfið í fótboltanum aftur af stað eftir tveggja vikna haustfrí.

Æfingar hefjast samkvæmt vetrartöflu hjá 4.flokki og yngri en eldri flokkar hefja æfingar síðar í október og hafa fengið upplýsingar sendar til sín vegna þessa. 

Ekki er búið að ganga fullkomlega frá öllum þjálfararáðningum tímabilsins en á morgun munu þjálfarar kynna fyrir iðkendum þjálfarateymi vetrarins. Í kjölfarið fá foreldrar upplýsingar sendar á Sportabler auk þess sem upplýsingar verða uppfærðar á heimasíðunni. Um miðjan október verða svo boðaðir foreldrafundir í öllum flokkum og á sama tíma munu styrktaræfingar bætast við æfingaáætlun hjá 5.flokki og eldri.

Hér má nálgast allar lykilupplýsingar um starfið og hér má nálgast allar upplýsingar um skráningu.

Mikilvægt er að allir foreldrar/aðstandendur gangi frá skráningu og kynni sér Sportabler samskiptaforritið sem notað er fyrir allar tilkynningar og upplýsingar til foreldra. Hafa allar æfingar októbermánaðar til að mynda verið settar inn á Sportabler hjá yngstu flokkum.

Iðkendum í 6. og 7.flokki stendur til boða að koma með rútu á æfingar úr Giljaskóla, Síðuskóla og Oddeyrarskóla á mánudögum og miðvikudögum líkt og undanfarin ár. Rútuaksturinn er niðurgreiddur að hluta af Akureyrarbæ og styrktur af Arion banka sem gerir iðkendum kleift að nýta þjónustuna gjaldfrjálst. Frekari upplýsingar má nálgast á tenglinum hér fyrir ofan.