Við áramót - verðlaunahátíð í Hamri 6. janúar kl. 17

Íþróttafélagið Þór býður til verðlaunahátíðar í Hamri föstudaginn 6. janúar, á þrettándanum. Samkoman hefst kl. 17.

Dagskrá hátíðarinnar verður að mestu hefðbundin og verður hún auglýst betur þegar lögð hefur verið lokahönd á hana. Meðal þess sem verður á dagskrá, eins og alltaf á þessari hátíð, er að lýsa kjöri íþróttakarls og íþróttakonu Þórs 2022.

Við hvetjum félagsfólk til að hittast á nýju ári og heiðra okkar besta fólk með því að fjölmenna í Hamar á þrettándanum. 

Tilkynnt var á milli jóla og nýárs hvaða íþróttafólk hafi verið tilnefnt af deildunum og var þá birt frétt hér á heimasíðunni með kynningum á íþróttafólkinu - sjá hér.