„Við trúum því að við séum bestar!“

Rut Herner Konráðsdóttir hefur spilað körfubolta í meistaraflokki lengur en fréttaritari heimasíðunnar man. Hún vildi ekki svara því í gærkvöld hvort hún myndi leggja skóna á hilluna núna, þegar hún hefur hjálpað uppeldisfélaginu upp í efstu deild.

Rut er langreyndasti leikmaður Þórsliðsins, en hún á að baki 169 meistaraflokksleiki frá árinu 2010, hluta þeirra í efstu deild. Rut hefur spilað með KR, Val og Breiðabliki, en mestan hlutan ferilsins með uppeldisfélaginu, Þór. Rut segir liðsheildina og trúna á sjálfar sig vera það sem skipti mestu máli í sigrinum á Snæfelli.