Viðar Ernir valinn til æfinga með U19 landsliðinu

Viðar Ernir ásamt Árna Rúnari Jóhannssyni, formanni handknattleiksdeildar.
Viðar Ernir ásamt Árna Rúnari Jóhannssyni, formanni handknattleiksdeildar.

Viðar Ernir Reimarsson hefur verið valinn í leikmannahóp U19 landsliðsins sem kemur saman til æfinga á næstunni.

Æfingar U19-landsliðsins fara fram dagana 9.-12. mars og eru þær liður í undirbúningi liðsins fyrir EM í Króatíu í sumar. Þjálfarar U19 liðsins eru Einar Jónsson og Heimir Ríkharðsson. Landsliðshópana í U21, U19, U17, U16 og U15 má sjá á vef HSÍ.