Vilhelm og Nökkvi framlengja við Þór

Knattspyrnudeild Þórs hefur endurnýjað samninga við Vilhelm Ottó Biering Ottósson og Nökkva Hjörvarsson.

Vilhelm Ottó, fæddur árið 2002, gerir samning til ársins 2025. Vilhelm Ottó hefur leikið 24 leiki fyrir Þór í deild og bikar; lék 16 leiki í Lengjudeildinni á síðustu leiktíð. Vilhelm er uppalinn í Þór en hefur einnig leikið með Dalvík/Reyni í meistaraflokki.

Nökkvi, fæddur árið 2006, gerir samning til ársins 2026. Nökkvi er á miðári í 2.flokki en hefur leikið tvo leiki í Lengjudeildinni með Þór. Hann skoraði mikilvægt sigurmark á lokamínútunum í 2-3 sigri Þórs á Ægi í 16.umferð í sumar en missti svo af lokakafla tímabilsins eftir að hafa orðið fyrir meiðslum í leik með 2.flokki.

Óskum drengjunum til hamingju með samningana og hlökkum til að fylgjast með þeim í baráttunni.